Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Dismiss

22. febrúar 2007 klukkan 15:36
Jæja
Allir að mæta á freestyle 2007 í loftkastalanum á morgun .. föstudaginn 23. febrúar kl. 18:00


Dismiss

Kjúlli

16. febrúar 2007 klukkan 18:45
Kjúklingabúlla Tómasar. 
(Kjúklingaframleiðsla ) Það er örugglega hlægilega auðvelt starf. Að þræða kjúkling uppá grillprjón til dæmis. Það eina sem er erfitt við það er að hlusta á ískrið í grillinu þegar það snýst. Það hefur farist fyrir að smyrja vélina svo það hljómar eins og kjúklingurinn sé með lífsmarki. Ég verð örugglega að vinna þetta í framtíðinni. Örugglega með fullt af fólki með svipuð vandamál að stríða og ég. Stöðugt löt, Stöðugt að éta og þarf stöðugt að vera að bursta í sér tennurnar. Auk þess þjáist ég við of mikinn svefn.
Allavega eru taugar mínar til samrændu prófana að gera mig heiladauða. Svo framhaldskólinn á kannski eftir að vera það heilengi og vinna á kjúklingastað með skólanum. Enda svo þar allt mitt líf. Vá hvað það væri geggjað!
Í dag.
Það hefur verið mjög áhugavert, svo ekki sé meira sagt, að pæla í gegnum gamlar dagbækur frá því ég var sirka 9 ára gömul og lesa um það þegar ástandið var skemmtileg, sorg, gleði . Stundum hefur það verið Sársaukafullt í byrjun en svo í endanum á deginum allir svo frábærir og ég elska alla en langoftast skemmtilegt. Hvernig ég nennti ég þessu, fá mikla verki í hendurnar því ég skrifaði svo mikið. Já ég skrifaði í dagbækur haha ! .
Svo var ég skotin í þessum , Dagmar var skotin í þessum.
Nú langar mig að finna ástarbréfin okkar.
Farin að leita

stand out - a goofe movie (Uppáhaldslagið mitt akkurat núna ) hehe.

Föndur !

24. desember 2006 klukkan 00:28

Vil bara óska ykkur öllum Gleðilegra jóla :)
hafið það gott yfir hátíðirnar :)
Blogga um jólin.


Snædís og lovísa í jólaskapi.

-snædísfarinaðþurkaaf.

Ryksugan á fullu

12. desember 2006 klukkan 00:17


Íbúðin fór að hringsnúast. Það leið næstum yfir mig. Ég heyrði í ryksugunni. Þetta var bara ég að ryksuga, neih.. það getur ekki verið. Nei .. það var hann faðir minn. Það gat ekki verið að þetta hefði verið ég. Ég veit valla hvað ryksuga er . Þetta var ekki satt, þetta var já.. hann faðir minn. Þetta skéði um helgina.. ég þoli gjörsamlega ekki hljóðin í þessum tryllitækjum . Alltof hátt fyrir mig. Get ekki lýst þessu hljóði, hafið eflaust heyrt það. En ég hata allaveg  þessar ryksugur. Þetta heyrist hjá flest öllum hver einustu jól. Allir að ryksuga. Ryksugan kemur sér vel að notum, þegar það er tiltektardagur. Þá tekur hún mest allt megnið af rykiinu.
Ryksugan mín er ósköp venjuleg. Ljót.. rauð á lit, og frekar lítil . Mér þykir bara ekkert vænt um hana. Hún má þess vegna hverfa .
Síminn minn hringdi áðan. Það var verið að minna mig á að fara til auglæknis. Ég þarf alltaf að stilla þetta svona 23 sinnum til að hringji nógu oft, svo ég gleymi þessu ekki. Ég er afskaplega gleymin manneksja. Því miður. En aldrei þessu vant, mundi ég að fara . Mæti þarna stundvíslega kl. 14:06, tíminn byrjaði 14:15.. eftir að tímanum lauk. Fór ég út með þá fréttir að ég væri með sjónskekkju og komin með meiri nærsýni. Glæsilegt. Og ég nota aldrei gleraugun. Þau eru líka leiðinleg. En ég ætla að fá mér ný, og gá hvort að mér finnst þau betri.
Þá hætti ég að gretta mig. Ég er forljót þannig. Með eitthverja forljóta grettu.


Þessi er víst frá eh norsku fyrirtækji.
Væntanlega leiðinleg.



farin..
ég hlakka svo til.

bless.

Jólablogg bráðum.. ( vonandi )

10. desember 2006 klukkan 22:34



Ívar hefur allatíð verið mikill aðdáandi jólasveinanna. Hann bíður spenntur eftir næsta bloggi.

ælupest

28. nóvember 2006 klukkan 01:27

Í nótt var alveg geðveikt gaman hjá mér. Ég svaf lítið. Svo ældi ég.
Þetta var bara stuð. Svo vaknaði ég í morgun .. reyndar ekki ælandi en næstum. Ældi aftur kl. 2 . Vá! dásamlega líf. Hata magaverki, þetta er eins og helvíti. Og ég sem vill ekki taka verkjatöflu.
En nóg um ælu .
Það eru þrír dagar síðan ég horfði seinast á sjónvarp. Ætla samt að horfa á það á eftir. kl. 20:00.
En seinast þegar ég horfði á það hafði ég ekkert að gera örugglega, því ég horfi aldrei á sjónvarp, nema á mánudögum. Jæja, ég stillti víst á skjá einn (minnir mig) . Þátturinn sem ég var að horfa á var ekkert skemmtilegur.
Gellan var að reyna vera eins og Oprah. (Talaði samt hraðar) . Hún var að tala um plokkun á körlum, það væri svo asnarlegt. Konur eiga bara að fara í plokkun. Karlar eiga heldur ekki að meika sig ea gera neitt fyrir sjálfan sig. En ég fór að pæla, afhverju þurfa kvennmenn eh frekar að gera þetta allt saman. Við erum bara mun fallegri, er það kannski útaf því að sumt kvenfólk lætur næstum hálfa dollu af meiki , klessir þessu beint í andlitið á sér. Lætur svo mikið af maskara, og bara eins miklar snyrtivörum og þær geta í sig látið. Gæti líka verið. Ég er ekkert á móti snyrtivörum , ég hreinlega elska maskara. Ég er hálf kjánaleg með engan maskara. Ekki eru karlar það ? . neij. Því þeir nota aldrei maskara. Reyndar finnst mér helmingur karlþjóðarinar hugsa mikið um útlit. Sumir láta allskyns snyrtivörur án þess að við kvenfólkið vitum. Það gæti líka verið .Mér finnst eins og allir eiga ekki að þurfa að klína á sig eh drasli. Vera bara með náttúra fegurð.
æj só wott. asnarleg hugsun. (haha).

Ég fór í kringluna í gær.
Sá svo flottan kjól. Hann verður jólakjóllinn minn í ár. Á bara eftir að kaupa hann. Hann er svona kóngablár , Vá fæ næstum fullnægjingu við að hugsa um hann hann var svo flottur. Auk þess má geta að ég hitti eina stúlku. Hún kallar sig Signý, hún er bjútífúl. Gaman að sjá þig Signý:*. Svo sá ég margt annað, t.d einn lítinn og feitann mann. Hann var mikið að hugsa. Því miður spurði ég hann ekkert hvað hann væri að hugsa.
Svo sá ég líka konuna sem ég sá einu sinni í bingó.. þið kannski munið eftir því þegar ég bloggaði á central síðunni minni þegar ég fór í bingó.. svo sá ég konu með hjút eyru ? , allavega ég sá hana í gær.
Ea sá hana ? Sá eyrun.
Þau er svo stór, geta örugglega ekki stækkað mér.
hehe mér fannst hún samt helvíti fyndin.

Brjánn.

Rosa sniðugt.

21. nóvember 2006 klukkan 05:17
1. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér eitthversstaðar, myndirðu halda að ég væri á föstu eða lausu?
2.Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
3.Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
4.Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?
5.Hvaða lag minnir þig á mig?
6.Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
7.Hvað giskarðu á að ég verði gamall þegar ég trúlofa mig?
8.Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
9.Hvernig stráka fíla ég?
10.Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
11.Hvað er mest einkennandi við mig?
12.Hvaða búðir elska ég að fara í?
13.Lokaorð til mín?

-snædís

Ég sé ekkert nema hvít..

10. nóvember 2006 klukkan 22:41

Ég sé ekkert nema hvít..
jú reyndar.. sést smá í Guggu hús , það er með rauðu þaki og strompurinn er grár.
Snjór, snjór og aftur snjór.
Mér líður eins og ég sé komin í jólafrí. En ekki er það enn komið. Því miður.
Mér líður samt þannig. Veðrið úti.. svo er kökuilmur hér heima. Veit ekkert afhverju. Kannski ég er orðin eh geðbiluð, það má vel vera - það skéður fyrir besta fólk á öllum aldri. Allavega finn ég alveg ómótsæðilega góða lykt, svo ligg ég undir sæng og heyri í veðrinu og með mjúsik á . Þetta er gerist bara ekki jólalegra.
Eina sem vantar er eh til að narta í, og jólaseríur og myrkur. Myrkrið kemur í kvöld..

Ég fór í skólann í morgun, í þessu veðri. Það var ekki gaman. Það er langt síðan ég hef verið svona þreytt. Svona mikið þreytt. Ég kom reyndar aðeins of hress í skólann. En ég get svo svarið það, þegar ég kom í íslensku fann ég mér góðann stól , og settist. Helduru að ég hafi ekki bara fundið þreytuna mína, farið um í öllum líkamanum mínum. Og augun byjruðu að lokast. Opnast. Lokast. Þetta endurtók sig aftur og aftur. Á meðan voru krakkarnir að segja " mmmm" kááááá"  ( Vorum í hljóðfræði í íslensku ). Jæja svo komu frímínútur og ég lagði mig . Steinsofnaði. Þessar mínútur voru dásamlegar. Mig fór að dreyma, man reyndar ekki alveg hvað það nú var. En það var samt gaman hjá mér. Svo vaknaði ég við hann Andra sem sagði mér að það væri að koma tími, og ég rauk upp. Augun mín voru samt enn lokuð. Þangað til ég byrjaði að labba.

Þessar nokkru mínútur björguði deginum.

Ég var hress sem eftir var af deginum.

Skóladeginum

Svo kem ég heim, og er ekki bara ógeðslegt veður úti. Það gerir flesta þreytta. Amen segji ég nu við þessari þreytu.


farin að æfa mig
....

...

 að syngja.


stabilo boss

07. nóvember 2006 klukkan 23:31

Ég dýrka svona daga. Þegar eh óvænt kemur fyrir, sem ég á engan veginn von á.
Og ég er búin að vera ekkert smá leið og fúl, og veik fyrr um daginn.
Ælandi ógeðslegri pítsu ofaní klóstið, útaf bakverki. næææs.
En svo hélt leiðin mín í stærðfræði uppí FS ( Æðislegustu, frábærustu tímarnir ). Ég sest niður og er að hugsa afhverju er Ástrós sé svona virkilega gáfuð, og fékk 9,4 fjóra í fyrsta prófinu og hinir með þessa ógeðslegu einkunnir. Já það hugsaði ég í nokkurn tíma, þangað til ég fattaði að ég væri ekkert að fylgjast með. Þá byrjaði ég að glósa meir, en svo fór hugurinn minn fór að hugsa eh, og ég fór að teikna. Úr teikningunni minni kom út gömul kona með sundhettu. Heyrðu fattaði ég ekki aftur að ég væri ekkert að fylgjast með. Andskotans. Svo loksins datt ég inní rúmfræðina æðislegu. Get sagt ykkur allt um horn. Jæja.. hringjir ekki síminn minn. Ég spyr kennarann hvort ég megi nokkuð fara á klóstið. Hann svarar játandi. Ég fer framm og svara. Er þetta ekki gamli danskennarinn minn sem var að kenna mér í vetur. Sigrún Birna, var bara að tjekka hvernig við stelpurnar sem vorum hjá henni í fyrra værum að gera núna. Ég sagði henni það, og hún sagði mér líka. Því ég spurði. Mér datt svo engan vegin í hug að hún myndi hringja. Mjög glöð á fá símtal. Ég spjallaði við hana í dágóðann tíma, þar sem ýmislegt kom framm.
jee..
Ég var akkurat að tala um að fara bara aftur í dans. Vera ekki lengur í fimleikonum, daginn áður.
en ég sé til hvernig þetta verður.
Jæja.. svo ef við förum út núna í nóvember er ekki bara komið nærrum því frost. Jeg ikke elsker det. Jeg hade det. Vakna á morgnanna með rauðar, stundum bláar tær útaf kulda það er ógeð. Fara svo í hlý föt, og er ennþá kalt. Fer svo út og fæ far í skólann. Svo get ég ekki lengur farið útí bakarí. Það er svo ógeðslega leiðinlegt að labba þessi nokkur skref útaf það er kuldi.
Ég hata kulda. Enn og aftur.. hætti aldrei að hata kulda.
Ég vil akkurat núna snjó og hita. Smá sól.
Munnlegt próf í dönsku á morgun, sjit það sökkar.
Vonum allt þetta besta.

nenni ekki að skrifa meir, er með sinardrátt.

jeg er fjernsyn.

vetur

31. október 2006 klukkan 05:31



Trausti veðurfræðingur var í banastuði á Para og vina. Ekki gaf hann sér tíma í að blogga.
Það kemur bráðlega.